Gjafabækur & jólabréf

Í vetur lögðumst við í að flokka og skrá gömlu bækurnar og mun sú skrá aðgengileg hér á vefnum okkar. Þar sem við erum að fara gegnum gríðarlegt magn bóka mun það ekki gerast á einum degi; góðir hlutir gerast hægt.

En nú erum við komin með nýjar bækur í sölu fyrir jólin og undir BÆKUR hér að ofan er listi yfir þær ásamt verðum. Við útbúum einnig allskonar sérsmíðuð gjafabréf eftir óskum hvers og eins fyrir jólin. Notaleg stund á Bókakaffi í jólapakkann? Já takk!

Hittumst á Bókakaffi Hlöðum.

Bókaflokkun heldur áfram

Flokkunin hélt áfram í dag og það gekk vonum framar að vinna okkur framúr stöflunum. Við erum ótrúlega sæl og þökkum bókaflokkurunum kærlega fyrir ánægjulega helgi þar sem allir aldurshópar mættust og nutu samverunnar innan um bókafjöll. Skráning er enn í gangi en við vonumst til að hafa bókaskrána aðgengilega hér á vefnum innan tíðar. Endilega fylgist með gangi mála!



Bókaflokkun

Nú erum við að flokka bókalagerinn á Bókakaffi, við erum að drukkna í bókum og fílum það mjög vel! Hópur fólks á öllum aldri lét hendur standa fram úr ermum í allan dag og það var mjög notalegt að sitja saman innan um bókaflóðið. Hlökkum til áframhaldandi flokkunar næstu daga, allir áhugasamir eru velkomnir að taka þátt.



HAUST / AUTUMN

Jæja nú er komið haust og opnunartími á Bókakaffi að breytast. Takk fyrir gott sumar og sjáumst í kósíheitum á Bókakaffi í haust!

Opið í haust; Autumn Opening;
MÁN – FIM 10:00 – 18:00 MON – FRI
LAU – SUNLokað Closed SAT – SUN

The seasons are changing and so are the opening hours at Bókakaffi.
Thanks for a great summer and see you at Bókakaffi during the cosy autumn!



MÁNUDAGUR 15.ÁGÚST / MONDAY 15 AUGUST

Þessi menu verður í gildi í kvöld, mánudag og í hádeginu á morgun, þriðjudag.

Grasker, kókos og engifersúpa

Gado-gado diskur með grænmeti, eggi og hnetusósu

Lamb, rófa og kartafla í matsaman karrí

Thailenskir ýsuklattar með sæt-chilisósu, hnetusósu og salati

Satay nautakjötsspjót


Pumpkin, coconut and ginger soup (vegetarian/ vegan)

Gado-gado platter with vegetables, egg, tofu and sweet-spicy peanut sauce (vegetarian/ vegan)

Lamb, swede and potato matsaman curry

Thai fish cakes made with Icelandic haddock
served with satay and sweet chili sauce

Beef satay skewers

Vikuna 15.-20.ágúst verður asískt þema á Bókakaffi sem byrjar með thailensku, Suðurasísku og Malasísku þema á mánudag/þriðjudag. Susannah hefur dvalið í Japan í tvö ár svo það má búast við japönsku þema í vikunni og fleiru spennandi.

Látið ykkur ekki vanta á asíska daga í Bókakaffi. Fylgist með á facebook.

Asian theme in Bókakaffi 15-20 AGUST starting with a Thai/South East Asian / Malaysian on Monday/Tuesday. We are expecting more exciting themes later this week including a Japanese theme as Susannah has lived in Japan for two years.

See you at Bókakaffi – follow up on facebook.



FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST / FRIDAY 12 AUGUST

Léttir réttir dagsins. Súpa, brauð og salat fylgir með öllum réttum.

Hin vinsæla ýsuommeletta með kryddjurtaskyri. Borin fram með klettasalati.

Rófu- og blaðlauksklattar með kryddjurtum og sítrónuskyri.

Heit beikon- og eggjapæja með sætum lauk og sinnepskeim. Borin fram með klettasalati og chutney.

Hægeldaður lambaleggur og rófumús með sellerí og hvítlauk.

Light dishes served today. All come with soup, bread and salad.

Our popular poached haddock omelette with icelandic sky and mixed herbs. Served with a simple rucola salad.

Leek and swede fritters served with herb and lemon skyr sauce (vegetarian).

Bacon and egg pie with caramelised onion and mustard. Served hot with rucola salad and chutney.

Braised lamb shanks served with a buttery celeriac and swede mash.

ORMSTEITI!

Bókakaffi og nágrannarnir hjá hár.is bjóða alla velkomna í Fellabæinn á Ormsteiti! Við mælum með ilmandi kaffi og gómsætri köku með nýgreitt hárið. Sjáumst við Lagarfljótsbrúna!

Bókakaffi and the hair salon next door welcome everyone to Fellabær during the town festival Ormsteiti. We recommend enjoying a soothing coffee and a yummy cake with a fresh haircut. See you by the Bridge!



MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST / MIÐVIKUDAGUR 10. AUGUST

Léttir réttir dagsins. Allir bornir fram með brauði.

Saltfiskvöfflur með rófusalati

Léttsteikt ýsuommeletta með skyrsósu með blönduðum kryddjurtum. Borin fram með klettasalati.

Lambaskanki með sellerístöppu og rófumús.

Uppáhald kokksins okkar: Egg frá Túnís. Feta-egg eldað í tómat-paprikkusósu.

Heit fiskibaka með kartöflutoppi borin fram með klettasalati

Light dishes served today. All served with bread.

ICELANDIC CLASSIC
Salt fish fritter w. rófusalat – An Icelandic classic, served waffle-style, with a sweet and tangy salad

Poached haddock omelette with creme fraiche, skyr and mixed herbs,
served with a simple rucola salad

Braised lamb shanks served with a buttery celeriac and swede mash

OUR CHEF’S FAVOURITE
Shakshuka – Tunisian egg Feta-spiked eggs poached in a rich and fragrant tomato and capsicum sauce

Bacon and egg pie served hot with rucola salad

Fish pie with potato top served hot with rucola salad



Við Brúna / By The Bridge

Bókakaffi er staðsett að Hlöðum þar sem lengi var rekin bókaverslun. Það var ekki fyrsti rekstur að Hlöðum því árið 1905, þegar fyrsta brú yfir Lagarfljót var vígð, hófu Fellamenn verslunarrekstur við Hlaðir. Hlaðir standa við vestari enda Lagarfljótsbrúar.

Fyrsta brúin yfir Lagarfljót var vígð árið 1905 en hafði verið í byggingu frá árinu 1901. Hún var byggð á gamla ferjustaðnum hjá Ekkjufelli. Brúin var kölluð staurabrú en hún var úr timbri og með járnbitum. Brúin stóð óbreytt í um fjóra áratugi en það var um árið 1950 sem hún var farin að gefa sig. Árið 1955 varð brúin svo fyrir hnjaski að völdum rekiss og því talið nauðsynlegt að endurbyggja hana. Það var gert veturinn 1956-1958 og var brúin þá breikkuð og steyptar undirstöður fyrir hana. Brúin var frá upphafi mikil samgöngubót og hugsanleg forsenda þess að þéttbýli myndaðist sitthvoru megin við hana. Brúin var lengi vel lengsta brú landsins.

Our location by the Lake Lagarfljót Bridge is a historical site. Our little café is now where used to be a bookstore and before that a farmers co-op store.

The building of the first bridge over Lake Lagarfljót was …